Muses.is tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist. Strax og greiðsla berst sendum við kaupanda staðfestingu í netpósti og þar með er kominn á samningur á milli kaupanda og Muses.is. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Að jafnaði tekur afgreiðsla listaverka 2-7 virka daga eftir að pöntun berst. Öll listaverk eru send með Íslandspósti. Íslandspóstur keyrir listaverkið heim að dyrum 2-4 dögum eftir að greiðslu frá Muses.is lýkur. Muses.is tryggir listaverkið þar til það hefur verið afhent kaupanda.
Er innifalinn í verði.
Hægt er að greiða fyrir listaverk með greiðslukorti. Greiðslusvæðið er varið með dulkóðun svo að öryggi kaupanda sé tryggt. Við geymum engin kortanúmer og allar kortafærslur fara í gegnum greiðslusvæði Kortaþjónustunnar hf. Greiðslusvæði Kortaþjónustunnar hf. sér um að öllum öryggisráðstöfunum sé beitt og öryggiskröfum fullnægt. Greiðslusvæðið er varið með SSL dulkóðun og er greiðsluferlið sjálft í samræmi við öryggiskröfur frá alþjóðlegu kortafyrirtækjunum, MasterCard International og Visa International, svokölluðum PCI-DSS staðli.
Sé óskað eftir öðrum greiðslumöguleika hafið þá samband við okkur á netfangið muses@muses.is
Öll verð á Muses.is eru með virðisaukaskatti 25,5% og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti. Vinsamlegast athugið að verðið á Muses.is getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl og/eða prentvillur.
Við leggjum okkur fram um að sýna öll listaverkin okkar í réttum litum. Það er hins vegar útilokað að ábyrgjast alveg rétt litbrigði eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna þess að vefmyndir búa við ákveðnar tæknilegar takmarkanir. Sé þess óskað munum við mæta óskum viðskiptavina um nánari lýsingu og myndum af listaverki, hafið samband á netfangið muses@muses.is
Heimilt er að skila listaverki innan 10 daga frá því að það er afhent. Listaverkið þarf að vera í sama ástandi og þegar það var keypt. Þar sem sendingarkostnaður er innifalinn í verði verður kaupandi að greiða endursendingarkostnað.
Muses.is heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum og leggjum við áherslu á að varðveita upplýsingar kaupanda á öruggan hátt.