EN / IS

Uppboð á verkum Westfjord Artfest 201212. apríl 2012 | 12:07

Westfjord ArtFest 2012 var haldin í annað sinn dagana 6. og 7. apríl í Rögnvaldarsal í Edinborgarhúsinu og Norska Bakaríinu Silfurgötu 5.

Í Rögnvaldarsal var plakatasýning 33 myndskreytara sem heitir Phobophobia en hún var unnin fyrir HönnunarMars. Þar völdu myndskreytarar sér eina phobiu til þess að túlka en sýningin átti að vekja athygli á þeim sem hóp. Í Rögnvaldarsal var einnig vídjóverk eftir Björk Viggósdóttir.

Í Norska Bakaríinu voru málverk eftir 20 myndlistarmenn en þeir höfðu allir unnið sérstakt verk fyrir hátíðina en þau voru öll 1m x 1m að stærð. Þar voru 3 ísfirskir myndlistarmenn en einnig höfðu nokkrir listamenn unnið verk með myndefni tengt Vestfjörðum. Í Norska Bakaríinu voru einnig vídjóverk eftir 4 listamenn og nýlenduverzlunin Brunngata þar sem hægt var að kaupa listaverk, boli og annan smávarning. Örn Tönsberg vann útiverk niður á bryggju fyrir framan tankana frá Olíudreifingu.

Hægt er að bjóða í verkin hér á muses.is.

/english/

Here on muses.is. you can place bids in the artwork at the artfestival Westfjord Artfest which was held for the second time at Isafjordur this easter.