EN / IS

Phobophobia22. mars 2012 | 13:49

Samsýning 33 teiknara á HönnunarMars í Bíó Paradís Hverfisgötu 54 dagana 21.-30.mars.

Phobia er hið myrka og frumstæða mannseðli sem býr sig undir flótta frá ógnum frumskógarins. Við erum öll fóbísk, en sumir þjást verr en aðrir. Þessir einstaklingar geta fyllst af angist þegar minnst er á sköllotta menn eða við tilhugsunina að fara á almenningsklósett. Aðrir geta ekki farið í afmæli af ótta við rauðar blöðrur.

Phobophobia er samsýning 33 teiknara. Myndir þessa hóps má finna í bókum, bæklingum, auglýsingum, í tölvuleikjum, á umbúðum og sjónvarpsskjám landsmanna. Í tilefni af HönnunarMars 2012 hafa teiknararnir unnið veggspjöld sem sýna ógnvænlegan, margslunginn og stundum kómískan heim fóbíunnar.

Verkin eru til sölu HÉR á Muses.is

Teiknararnir (Illustrators):

01. Áslaug Jónsdóttir - Sciophobia/Sciaphobia (hræðsla við skugga)
02. Bjarni Hinriksson - Sesquipedalophobi (ótti við löng orð)
03. Björk Bjarkadóttir - Anthrophobia/Anthophobia (Hræðsla við blóm)
04. Brian Pilkington - Dinophobia (Hræðsla við risaeðlur)
05. Edda Hrönn Kristinsdóttir - Aichmophobia (hræðsla við nálar og oddhvassa hluti)
06. Erla María Árnadóttir - Teratophobia (Hræðsla við að eignast vanskapað barn eða ótti við skrímsli og vanskapað fólk)
07. Erling Sævarsson - Xenophobia (hræðsla við útlendinga)
08. Evana Kisa - Agrizoophobia (Hræðsla við villt dýr)
09. Freydís Kristjánsdóttir - Ailurophobia (Hræðsla við ketti)
10. Halla Sólveig Þorgeirsdóttir - Pyrophobia (hræsðla við eld)
11. Halldór Baldursson - Anglophobia (Hræðsla við England og enska menningu)
12. Halli Civelek - Automysophobia (hræðsla við að vera skítugur)
13. Hugleikur Dagsson - Gynophobia (Hræðsla við konur)
14. Inga María Brynjarsdóttir - Ornithophobia (Fuglahræðsla)
15. Ingi Jensson - Demophobia (hræðsla við fjölmenni)
16. Jean Posocco (Jan Pozok) - Proctophobia (Hræðsla við endaþarma)
17. Karl Jóhann Jónsson - Novercaphobia (hræðsla við stjúpmóður sína)
18. Kristín Ragna Gunnarsdóttir - Nosocomephobia (Hræðsla við spítala)
19. Linda Ólafsdóttir - Pediophobia (hræðsla við dúkkur)
20. Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir - Disposophobia (hræðsla við að fleygja hlutum)
21. Margrét E Laxness - Levophobia (ótti við hluti vinstra megin við líkamann)
22. Maribel Gonzales Sigurjóns - Chronomentrophobia (Hræðsla við klukkur)
23. Megan Herbert - Logizomechanophobia (hræðsla við tölvur)
24. Ninna Margrét Þórarinsdóttir - Oikophobia (hræðsla við heimili og heimilistæki)
25. Rán Flygering - Claustrophobia (hræðsla við þröng og lokuð rými)
26. Sara Riel - Ebulliophobia (hræðsla við sápukúlur/loftbólur)
27. Silvia Villaverde Björgvinsdóttir - Batrachophobia (hræðsla við froska)
28. Siggi Valur - Acoustcophobia (Hræðsla við distorted hljóð)
29. Sigrún Eldjárn - Hexakosioihexekontahexaphobia (Hræðsla við töluna 666)
30. Sigurborg Stefánsdóttir - Zoophobia (hræðsla við dýragarðsdýr)
31. Þórarinn Leifsson - Islandophobia (Hræðsla við Ísland og íslenska menningu)
32. Þórey Mjallhvít Heiðar-Ómarsdóttir - Bacteriophobia (hræðsla við bakteríur)
33. Þórir Celin - Automatonophobia (hræðsla við búktalaradúkkur, vaxmyndir og allt sem minnir á lifandi menn og dýr)

Information in english

Phobophobia the exhibition is in Bíó Paradís located at Hverfisgata 54, 101 Reykjavík. Open 21.-30 march from mon-sun 14:00-23:00.

Phobia is a dark and primitive force of human nature, the urge to run from the dangers of the forrest, We are all phobic, but some suffer more than others. These individuals can be filled with terror in the presence of bald men, or ate the mere thought of having to use a public toilet. Other will not go to a birthday party due to their fear of red balloons.
Phobophobia is a collaborative art exhibition of 33 illustrators. From the books on the shelves in our living rooms to the cereal boxes in our kitchen cupboards, our homes are filled with illustrations, both obvious and hidden. As a part of DesignMarch 2012, the illustrators have created posters that explore the scary, complex and sometimes comic world of phobias.

Artprints from the exhibition can be found here on Muses.is