EN / IS

Kalli Youze í 20BÉ29. febrúar 2012 | 22:55

Þann 1.mars mun listamaðurinn Kalli Youze opna sýningu á verkum sínum í höfuðstöðvum okkar í 20BÉ Laugavegi 20b (Klapparstígsmegin). Þetta er fyrsta einkasýning hans eftir langt hlé. Kalli fæddist í Reykjavík árið 1977 og er einn af fyrstu graffitilistamönnum Íslands sem kom ásamt öðrum eins og bylgja inní íslenska menningu um miðjan tíunda áratuginn. Hann hefur stundað nám í myndlist bæði hér heima og í Danmörku en er að miklu leyti sjálfmenntaður. Hann sýnir akrýlverk máluð á pappír og striga. Allir velkomnir en verkin má einnig skoða í netgalleríinu Muses.is.

Ásamt galleríinu Muses.is má finna í 20BÉ föt eftir fatahönnuðina helicopter , Begga Design og Áróra .

Sýningin stendur frá 1. - 15.mars. Opnunartímar eru mán-fös frá kl 11:00-18:00 og lau frá kl 11:00-16:00.