EN / IS

VÄGGER - urban landscape18. janúar 2012 | 15:22


Á samsýningunni VÄGGER sýna níu listamenn verk í samstarfi við netgalleríið Muses.is. Sýningin er sett upp í Norræna húsinu og stendur frá 28.janúar til 26.febrúar 2012. Opnunin er kl 18 laugardaginn 28.janúar í Norræna húsinu. Verið velkomin!

Sýningin
Veggir leynast víða, oftar en ekki tökum við hvorki eftir þeim né spáum í hvað liggur handan þeirra. Borgarlandslag okkar er samansett úr ógrynni af veggjum sem þjóna þeim tilgangi að skýla okkur frá því sem er úti og inni.

Á miðjum tíunda áratugnum, hófst íslensk götulist fyrir alvöru og fengu veggirnir nýjan tilgang, þeir urðu strigi kynslóðar listamanna sem vildi svipta hulunni af veggjunum og opna nýja heima í stað þess að loka á þá.

Sýningin tengir saman tvær kynslóðir götulistamanna í Reykjavík ásamt einum götulistamanni frá Danmörku. Markmið með sýningunni er að endurspegla þverskurðinn af því sem er búið að gerjast síðustu árin og hvernig götulistin hefur hoppað í gegnum vegginn og inní hefðbundið sýningarrými með tilheyrandi aðlögun.



Listamenn

Andrea Helgadóttir
Er ein að upphafsmönnum götulistar á Íslandi og ein af fáum stelpum sem leggja stund á þessa list. Með auga fyrir fullkomnum hlutföllum og lifandi karaktersköpun hefur hún stimplað sér í sessi sem einn af bestu götulistamönnum landsins. Hún ber meðal annars ábyrgð á mikið af þeim stóru veggjum sem hafa verið málaðir hér í Reykjavík síðustu tvö árin.
Björn Árnason
Hann hefur tekið ljósmyndir frá árinu 2005, hann hefur haldið nokkrar einka- og samsýningar. Bakgrunnur Björns er m.a. úr götulistinni og graffítí. 
Myndefni ljósmyndanna sækir Björn í umhverfið bæði í borgum og dreifbýli. Hann einblínir síðan á ákveðið svæði eða rými sem er partur af stórri heildarmynd.
Gebes
Einn af fremstu graffiti málurum Danmerkur, hefur málað víða um heim ásamt stærstu götulistamönnum í heimi. Vinnur með einföldum formum og sterkri stafabyggingu sem hann brýtur upp með mismunandi áferðum. Sækir innblástur úr hryllingssögum og útfærir skuggahliðir mannsins á gamansaman hátt.
Margeir Dire Sigurðarson
Hann stundaði nám á myndlistarbraut við Verkmenntaskólann á Akureyri, Myndlistarskólanum á Akureyri, Lahti institude of Fine arts og Art direction í IED Barcelona. 
Margeir hefur haldið 7 einkasýningar og tekið þátt í yfir 20 samsýningum um heiminn, hann hefur staðið fyrir live painting sýningum í Barcelona þar sem hann býr. 
Hann notast hvað mest við olíumálningu, akrýl og spray og notar fjölbreyttan efnivið.
Myndefnið er það sem hann kallar Absorbism sem einkennist af taktföstum línum og hreinum formum sem skapa fígúratíft konsept með symbolísku ívafi. Innblástur sækir hann m.a. eðli náttúrunnar, tónlist, götulist, fólk og sögur.
Orri
Hefur fyrir löngu skipað sér í fararbroddi innan íslenskrar graffmenningarinnar. Sækir innblástur í spænska/suður-ameríska myndlist þar sem feigðinni er fagnað á fallegan hátt. Skapar ljóslifandi einfalda karaktera og þegar því er blandað saman við flóknu flæðandi stafagerðina hans skapast göldrótt heild.
Ólafur Guðmundsson
Ferill hans kemur úr mörgum áttum hann stundaði um tíma nám í Willem de Kooning í Hollandi en einnig hefur hann bakgrunn úr götulist og graffítí.
Hann hefur haldið nokkrar einkasýningur og tekið þátt í fjölda samsýninga og listahátíða.

Rögnvaldur Skúli Árnason .
Ungur Hafnfirðingur sem fékk námsstyrk til myndlistarnáms í Laguna Beach í BNA. Gerir photorealístisk verk þar sem hann blandar saman olíumálningu og úðabrúsum. Verk hans hafa alvarlegan undirtón en húmorinn er sjaldan langt í burtu, hann leikur sér mikið af málum í þjóðfélagsumræðunni án þess að taka persónulega afstöðu til þeirra.
Þorsteinn Davíðsson
Hann er úr Reykjavík og útskrifaðist úr grafískri hönnun við LHÍ árið 2005. Þorsteinn starfar við auglýsingargerð, myndskreytingu og eigin listsköpun. Graffiti, vatnslitir og silkiprent eru miðlar sem hafa verið ofaná síðustu ár. Sýnt á fjölmörgum samsýningum og haldið eina einkasýningu til þessa.
Örn Tönsberg
Hann hefur bakgrunn í tónlist og götulist og hefur verið að mála og teikna frá unglingsárum. Upp á síðkastið hefur hann smátt og smátt verið að færa starfsemi sína innandyra, en myndefnið sækir hann þó enn af götum borgarinnnar og mannlífinu þar. Hann hefur haldið nokkrar sam- og einkasýningar en síðasta einkasýning hans var sýningin FuglOrðiðFólk í Gallerí Klósett.